1)
Hér er linkur inn á góða túristasíðu með almennar upplýsingar um París: http://en.parisinfo.com/
Hér er linkur inn á upplýsingasíðu um 3. hverfi: http://en.parisinfo.com/paris-sightseeing/visit-the-marais-district/
2)
Tengill að neti liggur á skrifborðinu. Aðgangsorð að þráðlausri tengingu er skráð neðan á ráternum sem er í neðstu bókahillu til vinstri. Fjarstýringar að sjónvarpi, dvd-spilara og myndlykli fúnkera alveg eins og heima á Íslandi.
3)
Metromiðar gilda í metróið sjálft auk RER og strætisvagna (RATP). Gott er að kaupa vikukort í Metro þar sem þau gilda frá mánudegi til sunnudags og kosta 16 evrur (mynd þarf og er ljósmyndakassi á metróstöð). Aldrei skal kaupa staka farmiða, heldur þá frekar “carnet” (borið fram “kar-ne”) sem eru tíu miðar saman í búnti og miklu ódýrari. Til eru líka ferðamannakort (metro og söfn) sem fást á túristaskrifstofum (t.d. í Pompidou), í bókabúðunum Fnac (sú næsta í Les Halles) og á metróstöðvum Parísarborgar (ein á Place de la République). Sjáið hér nánari upplýsingar (á ensku).
4)
Í einhverri bókahillu í borðstofunni eru þrjú eintök af metróbókum, gestum til gagns. Þar er hægt að fletta upp öllum götum í París.
5)
Besta matvöruverslunin: Monoprix á rue de Temple gegnt samnefndri metróstöð. Í þessari búð er kjötborð og ostaborð í hæsta gæðaflokki. Gaman er samt að fara á markað til að kaupa kræsingar í matinn. Einn sá elsti í París er rétt hjá, á Rue de Bretagne, á móti ráðhúsi 3. hverfis, og heitir Le Marché des Enfants Rouges (opið frá morgni fram yfir hádegi).
6)
Besta bakaríið í nágrenninu er á rue Faubourg de Temple, fyrsta götuhorni hinumegin við Place de la Republique. Sumum finnst venjulegt “baguette” best, en allir ættu samt að prófa “tradition” sem er bakað eftir hefðbundnum aðferðum og dekkra.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment